1. Miðakaup þín teljast persónubundið og afturkallanlegt leyfi til að sækja viðburði, sem er ávallt í eigu viðburðahaldara.
  2. Vinsamlega athugaðu miðana þína, hvort réttar upplýsingar komi þar fram. Ekki er alltaf hægt að laga mistök við miðakaup eftirá.
  3. Miðarnir þínir eru seldir af viðburðahaldara beint til viðskiptavinar. Miðar sem keyptir eru á hátt sem samræmist ekki reglum okkar um miðakaup verða gerðir ógildir.
  4. Þú samþykkir og ert bundin(n) þeim skilmálum sem eiga við þennan viðburð.
  5. Aðstandendur taka enga ábyrgð á einkamunum eiganda miða á meðan viðburði stendur.
  6. Miðar geta einungis verið keyptir í gegn um fludirumverslo.is. Allir miðar keyptir í gegnum þriðja aðila verða gerðir ógildir.
  7. Korthafi verður að vera viðstaddur þegar gengið er inn á tónleikastað. Allir aðrir miðahafar sem eru undir sama nafni þurfa að ganga inn á sama tíma.
  8. Miðinn þinn eða miðar verða samstundis gerðir ÓGILDIR ef þeir eru endurseldir eða boðnir til sölu.
  9. Miðar fást ekki endurgreiddir nema góð og gild ástæða sé fyrir forföllum.
  10. Til þess að miði sé gildur þarf miðakaupandi ávallt að geta sýnt eftirfarandi á staðsetningu viðburðar.
    1. Miðann eða miðana.
    2. Kredit- eða debetkortið sem var notað í kaupferlinu eins og kemur fram á bókunarstaðfestingu.
    3. Bókunarstaðfestingu.
    4. Gilt skilríki með mynd sem passar við nafnið á bókunarstaðfestingunni og kredit/debet kortinu.

Geymdu miðann/miðana þína á öruggum stað, eins og þú myndir geyma fjármuni eða aðra miða. Viðburðahaldari tekur ekki ábyrgð á óþægindum sem gætu hlotist vegna falsaðra eða afritaðra miða. Ef upp kemst um afritaða eða falsaða miða gæti ábyrgðarmaður viðburðar neitað öllum handhöfum miða inngangi á viðburð og krafist borgunar fyrir alla afritaða eða falsaða miða frá upprunalegum kaupanda.